KR fékk í dag leikheimild fyrir brasilískan framherja, Fernanda Vieira Baptista, sem mun leika með liðinu í Pepsi-deild kvenna í sumar.
Baptista er 21 árs gömul og kemur frá Santos í heimalandinu, þar sem hún lék á síðasta ári. Þar áður var hún á mála hjá Centro Olímpico í Brasilíu.
Fyrsta umferð Pepsi-deildarinnar fer fram á miðvikudaginn eftir viku þar sem KR mætir Íslandsmeisturum Breiðabliks.