Tseng komin aftur til Fylkis

Shu-o Tseng í leik með Fylki gegn Stjörnunni síðasta sumar.
Shu-o Tseng í leik með Fylki gegn Stjörnunni síðasta sumar. mbl.is/Árni

Kvennalið Fylkis hefur samið á ný við Shu-o Tseng, landsliðskonu frá Taívan, um að leika með liðinu á komandi keppnistímabili.

Tseng er 31 árs gömul og spilaði með Fylki hluta síðasta sumars áður en hún yfirgaf liðið og hélt til Frakklands. Hún snýr nú aftur til landsins frá Frakklandi, en hún spilaði þrettán leiki í Pepsi-deildinni og skoraði eitt mark síðasta sumar.

Tseng fylgir þar með samlöndu sinni Lin Man-ting sem einnig fékk leikheimild með Fylki í dag, eins og áður kom fram á mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert