Allt tilbúið í Ólafsvík

Þorsteinn Már Ragnarsson fagnar með félögum sínum eftir að hafa …
Þorsteinn Már Ragnarsson fagnar með félögum sínum eftir að hafa skorað fyrsta mark Víkings í Pepsi-deildinni í ár. mbl.is/Árni Sæberg

Víkingar í Ólafsvík eru tilbúnir til að taka á móti Valsmönnum á grasvelli sínum á sunnudaginn en þá mætast liðin í annarri umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu fyrir vestan.

Ólafsvíkingar, sem lögðu Breiðablik óvænt á útivelli, 2:1, í fyrstu umferðinni síðasta sunnudag, birtu myndir af vellinum á Twitter fyrir stundu en þær voru teknar í morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert