Valur lánar Haukum varnarmann

Gunnar Gunnarsson rennir sér í boltann í leik gegn Leikni …
Gunnar Gunnarsson rennir sér í boltann í leik gegn Leikni í fyra. mbl.is/Golli

Haukar hefja í kvöld keppni í 1. deild karla í knattspyrnu, Inkasso-deildinni, þegar þeir mæta Grindavík suður með sjó. Varnarmaður hefur bæst í hópinn fyrir þann leik.

Gunnar Gunnarsson fékk í dag félagaskipti frá Val í Hauka en hann kemur að láni frá Hlíðarendafélaginu. Gunnar lék 8 leiki í Pepsi-deildinni í fyrra og einn bikarleik fyrir bikarmeistarana. Hann lék 10 deildarleiki með Val árið 2014.

Gunnar er annar leikmaðurinn sem kemur að láni til Hauka frá Val en áður hafði Haukur Ásberg Hilmarsson komið. Haukar lánuðu Val hins vegar markahrókinn Björgvin Stefánsson.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert