Selfoss sótti sigur á Skagann

Leikmenn Selfoss fagna marki sínu gegn ÍBV í fyrstu umferð …
Leikmenn Selfoss fagna marki sínu gegn ÍBV í fyrstu umferð deildarinnar.

Selfoss komst á sigurbraut á nýjan leik þegar liðið hafði betur 2:0 gegn nýliðum ÍA í þriðju umferð Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu í kvöld.

Lauren Elizabeth Hughes kom Selfyssingum yfir eftir hálftíma leik og Eva Lind Elíasdóttir skoraði seinna markið á 73. mínútu.  

Selfoss er komið með sex stig eftir þennan sigur og situr í þriðja sæti deildarinnar stigi á eftir toppliðunum, Stjörnunni og FH. ÍA situr aftur á móti á botni deildarinnar, en liðið án stiga eftir að hafa leikið þrjá leiki. 

ÍA 0:2 Selfoss opna loka
90. mín. Leik lokið Leik lokið með 2:0 sigri Selfoss.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert