FH fer afar vel af stað

Jeannette Williams, markvörður FH, í leik liðsins gegn Breiðabliki.
Jeannette Williams, markvörður FH, í leik liðsins gegn Breiðabliki. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

FH sem er nýliði í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu er enn taplaust eftir fyrstu þrjár umferð deildarinnar, en liðið lagði KR að velli, 1:0, í leik liðanna á Alvogen-vellinum í kvöld.

Það var Guðný Árnadóttir sem skoraði sigurmark FH á 14. mínútu leiksins með skoti úr aukaspyrnu af löngu færi.  

FH er með sjö stig eftir þennan sigur, en liðið hefur jafn mörg stig og Stjarnan sem trónir á toppi deildarinnar. KR er hins vegar með eitt stig í næstneðsta sæti deildarinnar. 

KR 0:1 FH opna loka
90. mín. Leik lokið Leik lokið með 1:0 sigri FH.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert