Spánverjinn yfirgefur Breiðablik

Sergio Carrallo.
Sergio Carrallo. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Spænski knattspyrnumaðurinn Sergio Carrallo er farinn frá Breiðabliki en samkomulag var gert við leikmanninn um riftun á samningi hans við félagið. Þetta kemur fram á vef stuðningsmanna Breiðabliks.

Carrallo, sem lék með yngri flokkum Real Madrid á sínum tíma, spilaði talsvert með Blikum á undirbúningstímabilinu en hefur ekki verið í leikmannahópnum eftir að Íslandsmótið hófst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert