U17 ára landsliðið æfði með A-landsliðinu - Mynd

Leikmenn íslenska A-landsliðsins og U17 ára landsliðsins ásamt Heimi Hallgrímssyni …
Leikmenn íslenska A-landsliðsins og U17 ára landsliðsins ásamt Heimi Hallgrímssyni og Lars Lagerbäck, og Halldóri Björnssyni þjálfara U17 ára liðsins. Ljósmynd/KSÍ

Íslenska U17 ára landslið karla í knattspyrnu æfði í dag með A-landsliðinu á Laugardalsvelli.

Enn vantar allnokkra leikmenn A-landsliðsins, þá sem enn eru að spila með sínum félagsliðum, Eið Smára Guðjohnsen þar á meðal. Alls voru 10 leikmenn A-landsliðsins á æfingunni. Þá má sjá ásamt Heimi Hallgrímssyni og Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfurum Íslands, og U17 ára landsliðinu á meðfylgjandi mynd.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert