Dregið var í 16 liða úrslitum Borgunarbikars karla í knattspyrnu í höfuðstöðvum KSÍ í hádeginu í dag. Þrír úrvalsdeildarslagir verða í 16 liða úrslitunum.
Það er ljóst að minnsta kosti tvö lið utan Pepsi-deildarinnar komast í 8 liða úrslitin þar sem Vestri og Fram mætast annars vegar og Selfoss – Víðir hins vegar í 16 liða úrslitunum
Hér að neðan má sjá hvaða lið mætast í 16 liða úrslitum keppninnar.
Víkingur R. – Valur
Stjarnan – ÍBV
Vestri – Fram
Þróttur R. – Grótta
Grindavík – Fylkir
Selfoss – Víðir
FH – Leiknir R.
ÍA – Breiðablik