Fylkir og ÍA gerðu 1:1 jafntefli í 4. umferð Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu í dag en leikið var í Árbæ. Mark í uppbótartíma tryggði ÍA stig í dag.
Fylkisliðið var fyrir leikinn án sigurs í deildinni á meðan ÍA var stigalaust. Það byrjaði því vel hjá Fylki en liðið komst yfir á 9. mínútu. Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoraði þá eftir sendingu frá Söndru Sif Magnúsdóttur.
Fylkir leiddi í hálfleik og var þá útlit fyrir að liðið myndi landa sínum fyrsta sigri í deildinni en Maren Leósdóttir hélt ekki.
Hún jafnaði leikinn i uppbótartíma síðari hálfleiks og tókst þar með að ná í fyrsta stigið sem ÍA fær í deildinni. Fylkir þarf á meðan að bíða eftir sínum fyrsta sigri.
Fylkir er með 3 sti eftir fyrstu fjóra leikina en ÍA aðeins með 1 stig.
Fylkir | 1:1 | ÍA | Opna lýsingu Loka | |
---|---|---|---|---|
90. mín. Maren Leósdóttir (ÍA) skorar Ótrúlegt! ÍA jafnar í uppbótartíma. Maren Leósdóttir að ná í stig fyrir Skagaliðið. | ||||
Augnablik — sæki gögn... |