Stjarnan áfram á toppnum

ÍBV og Stjarnan eigast við í Eyjum.
ÍBV og Stjarnan eigast við í Eyjum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Stjarnan sigraði ÍBV 1:0 í 4. umferð Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu í dag en leikið var á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum. Stjarnan er því áfram taplaus.

Fyrir þennan leik hafði ÍBV einungis unnið einn leik en Stjarnan var búin að vinna tvo leiki og gera eitt jafntefli.

Eftir markalausan fyrri hálfleik þá kom Harpa Þorsteinsdóttir Stjörnunni á bragðið á 54. mínútu en það reyndist eina mark leiksins.

Lokatölur 1:0 fyrir Stjörnunni sem er í efsta sæti deildarinnar með 10 stig eftir fyrstu fjórar umferðirnar en ÍBV er í 7. sæti með 3 stig.

ÍBV 0:1 Stjarnan opna loka
90. mín. María Eva Eyjólfsdóttir (Stjarnan) kemur inn á
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert