Þór/KA og KR gerðu 1:1 jafntefli í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu í dag en leikið var á Þórsvelli. Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is.
KR komst yfir undir lok fyrri hálfleiks en Anna Rakel Pétursdóttir varð fyrir því óláni að koma boltanum í eigið net á 43. mínútu.
Andrea Mist Pálsdóttir skoraði svo jöfnunarmarkið á 66. mínútu og tryggði Þór/KA þar með stig úr leiknum en leiknum lauk með 1:1 jafntefli.
Þór/KA er með 5 stig eftir fyrstu fjóra leikina en KR er með 2 stig.
Þór/KA | 1:1 | KR | Opna lýsingu Loka | |
---|---|---|---|---|
90. mín. Leik lokið Þetta er búið á Akureyri og jafntefli er niðurstaðan. | ||||
Augnablik — sæki gögn... |