Keflavík vann Grindavík 2:0 í 1. deild karla í knattspyrnu en þetta var fyrsta tap Grindavíkur í deildinni. Leiknir R. og Fjarðabyggð gerðu þá markalaust jafntefli.
Magnús Þórir Matthíasson kom Keflavík yfir í byrjun leiks og Sigurbergur Elísson tryggði sigurinn með marki um miðjan síðari hálfleik.
Leiknir R. er með 10 stig á toppi 1. deildar, Grindavík er með 9 stig og Keflavík 8 í þremur efstu sætunum. Fjarðabyggð er komin með 5 stig um miðja deild.
Hinir fjórir leikirnir í fjórðu umferð deildarinnar fara fram á morgun.
Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is
Leik lokið. Þetta er búið! Keflavík fer með sigur af hólmi eftir frábæran leik gegn Grindavík og þá gerðu Leiknir R. og Fjarðabyggð markalaust jafntefli.
66. MAARKKK!! Keflavík 2:0 Grindavík. Sigurbergur Elísson er að koma Keflvíkingum í þægilega stöðu með marki úr vítaspyrnu. Grindavík er ekki að fara að koma til baka úr þessu.
65. Engin mörk að láta sjá sig í þeim síðari. Staðan en sú sama í leikjunum. Leiknir er með toppsætið ef þetta fer svona.
Hálfleikur. Keflavík er yfir gegn Grindavík í hálfleik en það er enn markalaust á Leiknisvelli.
2. MAAARK!! Keflavík 1:0 Grindavík. Magnús Þórir Matthíasson að koma Keflvíkingum yfir eftir aðeins tveggja mínútna leik. Þvílíkt og annað eins!
1. Þetta er byrjað.
0. Leikirnir verða uppfærðir hér.