Blikar semja við efnilegan leikmann

Arnar Grétarsson, þjálfari Breiðabliks, hefur samið við ungan og efnilegan …
Arnar Grétarsson, þjálfari Breiðabliks, hefur samið við ungan og efnilegan leikmann. Ófeigur Lýðsson

Ágúst Eðvald Hlynsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við knattspyrnudeild Breiðabliks. Ágúst Eðvald hefur tvisvar verið á bekknum hjá meistaraflokki í Pepsi-deildinni í sumar.

Ágúst, sem er fæddur í mars árið 2000 og er nýorðinn 16 ára gamall, skoraði í sínum fyrsta opinbera leik fyrir meistaraflokk. Það var í bikarleik gegn Kríunni fyrr í vikunni og þar með varð Ágúst yngsti leikmaður í sögu Breiðabliks að skora fyrir meistaraflokk karla.

Ágúst hefur átt fast sæti í unglingalandsliði Íslands U-17 ára undanfarið ár og spilað sex leiki með liðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert