Ótrúleg tölfræði Tokic

Þorsteinn Már Ragnarsson, Hrvoje Tokic, Þórhallur Kári Knútsson og Pape …
Þorsteinn Már Ragnarsson, Hrvoje Tokic, Þórhallur Kári Knútsson og Pape Mamadou Faye.

Króatíski framherjinn Hrvoje Tokic skoraði jöfnunarmark Víkings Ólafsvíkur í 1:1 jafntefli liðsins gegn Íslandsmeisturunum, FH, í sjöttu umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu á Kaplakrikavelli í kvöld.

Tokic er afar þefvís á marktækifæri, en hann hefur verið verulega iðinn við kolann síðan hann kom til Ólafsvíkur í júlí síðasta sumar. 

Tokic hefur skorað 18 mörk í síðustu 14 leikjum sem hann hefur leikið fyrir Víking Ólafsvík þar af sex mörk í Pepsi-deildinni í sumar sem er ansi vel af sér vikið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert