Þór/KA burstaði FH í Kaplakrika

Sandra María Jessen skoraði fyrsta mark leiksins
Sandra María Jessen skoraði fyrsta mark leiksins mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þór/KA vann afar öruggan 4:0 sigur á FH þegar liðin mættust í fimmtu umferð Pepsi-deildar kvenna. Þór/KA fór þar með upp yfir FH í þriðja sæti deildarinnar með átta stig en FH er í fimmta sæti með sjö stig.

Staðan í hálfleik var 1:0 en gestirnir að norðan sýndu allar sínar bestu hliðar í seinni hálfleik og unnu afar öruggan sigur.

Fimmtu umferðinni lýkur með stórleik Vals og Stjörnunnar sem verður í beinni lýsingu á mbl.is klukkan 16:00 í dag, laugardag.

Ítarlegri leiklýsingu, byggða á upplýsingum frá fotbolti.net má finna að neðan.

FH 0:4 Þór/KA opna loka
90. mín. Leik lokið
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert