KA sigraði HK 2:0 í 7. umferð Inkasso-deildar karla í knattspyrnu í dag en leikið var á Akureyrarvelli. KA er því komið aftur í toppsætið en liðið er með betri markatölu en Þór sem fer niður í annað sæti.
Guðmann Þórisson kom KA á bragðið á 29. mínútu áður en Ásgeir Sigurgeirsson bætti við öðru marki þrettán mínútum fyrir leikslok.
Lokatölur því 2:0 KA í vil sem skellir sér aftur í efsta sætið deildarinnar með 16 stig á meðan HK er í ellefta sæti með 5 stig.
Leik lokið. KA tyllir sér aftur á toppinn með 16 stig eftir sjö umferðir. HK er í ellefta sæti með 5 stig.
77. MAAAAAARK!!! KA 2:0 HK. Ásgeir Sigurgeirsson skorar annað mark fyrir KA. Nú er þetta svo gott sem komið hjá þeim.
46. Síðari hálfleikur er hafinn.
Hálfleikur.
29. MAAAAARK!!! KA 1:0 HK. Guðmann Þórisson að koma KA yfir eftir hálftíma leik.
1. Leikurinn er hafinn.