Víkingur Ólafsvík vann gríðarlega sterkan sigur á Þrótti þegar liðin mættust í níundu umferð Pepsi-deildar karla. Lokatölur urðu 3:2 en Þróttur komst í 2:0 eftir aðeins þriggja mínútna leik.
Kuldalegir áhorfendur í Ólafsvík voru varla sestir þegar Þróttarar komust yfir með fyrstu sókn leiksins. Thiago Borges þræddi boltann í gegnum vörn Ólsara og Brynjar Jónasson skoraði af mikilli yfirvegun framhjá Cristian Liberato, markveði Víkings.
Markið kom sem köld vatnsgusa framan í heimamenn og ekki skánaði ástandið í þeirra herbúðum aðeins 70 sekúndum síðar. Útspark Arnars Darra rataði á kollinn á Brynjari sem fleytti boltanum áfram “a-la Kolbeinn”. Vilhjálmur Pálmason var skyndilega á auðum sjó og aftur var nýtingin á færinu til fyrirmyndar hjá Þrótturum.
Hrvoje Tokic minnkaði muninn með góðum skalla og staðan að loknum fjörugum fyrri hálfleik var 2:1, gestunum í vil.
Seinni hálfleikur var lengstum ekki eins skemmtilegur og sá fyrri en lokakaflinn var heldur betur líflegur. Varamaðurinn Alfreð Már Hjaltalín jafnaði metin á 84. mínútu en á þessum kafla lá mikið á vörn Þróttara.
Endurkoma heimamanna var svo fullkomnuð í uppbótartíma þegar Aleix Egea skallaði hornspyrnu William Domingues í markið og Ólsarar halda því áfram ótrúlegu gengi sínu á heimavelli en þar hafa þeir ekki tapað síðan í ágúst 2014.