Þungu fargi af okkur létt

Ásgeir Eyþórsson og Oddur Ingi Guðmundsson, leikmenn Fylkis, verjast sókn …
Ásgeir Eyþórsson og Oddur Ingi Guðmundsson, leikmenn Fylkis, verjast sókn Víkings. Þórður Arnar

„Við vorum orðnir þreyttir á því að spila vel en ná ekki í þrjú stig. Það er gríðarlega sætt að brjóta ísinn og ná loksins þessum fyrsta sigri,“ sagði Hermann Hreiðarsson, þjálfari Fylkis, eftir 1:0 sigur liðsins gegn Víkingi Reykjavík í níundu umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu í kvöld.   

„Það var mikill neisti í leikmönnum liðsins á æfingum í vikunni. Ég fann það þegar við spjölluðum saman fyrir leikinn og síðan í hálfleik að það var mikill vilji til þess að bera sigur úr býtum í þessum leik. Það tókst sem betur fer og nú verðum við að halda áfram á þessari braut,“ sagði Hermann enn fremur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert