Breyttir leiktímar í Borgunarbikar karla

Breiðablik og ÍBV mætast klukkan 14.00 á sunnudag.
Breiðablik og ÍBV mætast klukkan 14.00 á sunnudag.

Búið er að breyta tímasetningum þriggja bikarleikja í 8-liða úrslitum Borgunarbikars karla í knattspyrnu. Leikirnir áttu að hefjast klukkan 16.00 sunnudaginn 3. júlí en vegna leiks Íslands og Frakklands í 8-liða úrslitum á Evrópumótinu hefur leiktímum verið breytt.

Viðureignir Vals og Fylkis annars vegar og Breiðabliks og ÍBV hins vegar voru færðar fram um tvo tíma. Leikirnir hefjast því klukkan 14.00 en ekki 16.00 eins og áætlað hafði verið.

Viðureign 1. deildarliðanna Fram og Selfoss var hins vegar færð yfir á þriðjudaginn 5. júlí og hefst klukkan 19.15.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert