Stíflan er brostin

Elín Metta Jensen
Elín Metta Jensen Ljósmynd/Sigfús Gunnar

„Ég myndi segja að stíflan sé brostin,“  sagði Elín Metta Jensen, sem skoraði þrennu í 6:1 sigri Vals á Þór/KA að Hlíðarenda í dag þegar 6. Umferð efstu deildar kvenna í knattspyrnu fór fram.

Valskonur riðu ekki feitum hesti frá síðasta leik sínum í deildinni eftir 3:0 tap fyrir Stjörnunni en nú komu þó mörkin.  „Við hvöttum okkur eftir síðasta leik að svara fyrir hann og við höfum spilað vel í sumar svo ég held það hafi bara verið tímaspursmál hvenær við færum almennileg í gang, til dæmis í markaskorun,“  hélt Elín Metta áfram.     

„Við höldum áfram að safna stigum og sjáum til í lokin en við erum bjartsýnar og höfum trú á okkur.  Mér fannst ekkert erfitt hjá liðinu á meðan við biðum eftir að stíflan brysti, fannst alltaf góð stemming innan hópsins og við stöndum saman í gegnum allt, mér fannst að við hefðum náð að tækla það vel.“  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert