Selfoss vann FH - Jafnt í Árbæ

Selfoss fær FH í heimsókn.
Selfoss fær FH í heimsókn. Eggert Jóhannesson

Tveimur leikjum var að ljúka í 6. umferð Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu en Selfoss sigraði FH 2:0 á meðan Fylkir og KR gerðu 1:1 jafntefli í Árbæ. Fylgst var með öllu því helsta hér á mbl.is.

Selfoss vann FH 2:0 á Jáverk-vellinum á Selfossi. Lauren Elizabeth Hughes kom Selfyssingum yfir á 21. mínútu áður en Magdalena Anna Reimus bætti við öðru þegar um það bil tuttugu mínútur voru eftir af leiknum.

Lokatölur 2:0 fyrir Selfyssingum sem fara upp í fjórða sæti með sigrinum en liðið er með 9 stig á meðan FH er í sjötta sæti með 7 stig.

Fylkir og KR gerðu þá 1:1 jafntefli í Árbæ. Sigríður María Sigurðardóttir kom KR yfir eftir 28. mínútna leik en Berglind Björg Þorvaldsdóttir jafnaði metin á 57. mínútu. Lokatölur 1:1 en Fylkir á enn eftir að vinna leik í deildinni.

Fylkir er i níunda sæti með 4 stig en KR í sjöunda sæti með 6 stig.

Selfoss 2:0 FH
Fylkir 1:1 KR

Fylgst var með öllu því helsta í lýsingunni hér fyrir neðan.

Leik lokið. Selfoss sigrar FH 2:0 á meðan Fylkir og KR gera 1:1 jafntefli. 

67. MAAAAAARK!!! Selfoss 2:0 FH. Magdalena Anna Reimus að koma Selfyssingum í tveggja marka forystu.

57. MAAAAAAARK!!! Fylkir 1:1 KR. Berglind Björg Þorvaldsdóttir að jafna metin fyrir Fylkiskonur.

46. Síðari hálfleikur er hafinn.

Hálfleikur.

28. MAAAAAARK!!! Fylkir 0:1 KR. Sigríður María Sigurðardóttir að koma KR-ingum yfir í Lautinni.

21. MAAAAAARK!!! Selfoss 1:0 FH. Lauren Elizabeth Hughes er að koma Selfyssingum yfir.

1. Leikirnir eru komnir af stað.

0. Fylgst verður með öllu því helsta hér að ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert