Gott að koma mér á blað

Óskar Örn Hauksson brennir af einu af fjölmörgum færum KR …
Óskar Örn Hauksson brennir af einu af fjölmörgum færum KR í leiknum. Þórður Arnar Þórðarson

„Það afar góð tilfinning að brjóta ísinn með fyrsta marki mínu í sumar og koma því út úr kerfinu. Fyrst og fremst er ég þó ánægður með að hafa náð að landa sigri í þessum leik,“ sagði Hólmbert Aron Friðjónsson í samtali við mbl.is eftir að hafa skorað sigurmark KR í 2:1 sigri liðsins gegn Glenovan í fyrstu umferð í forkeppni Evrópudeildarinnar í knattspyrnu karla í kvöld. 

„Við erum með töluvert betra lið að mínu mati og eftir að við hristum af okkur stressið sem var til staðar í upphafi þá vorum við mikið sterkari aðilinn í leiknum. Við héldum boltanum vel, létum hann ganga hratt og sköpuðum okkur fullt af færum. Við hefðum getað skorað mikið fleiri mörk og vonandi kemur það í seinni leiknum,“ sagði Hólmbert Aron enn fremur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert