Eyjamenn styrkja framlínuna

Guðmundur Steinn Hafsteinsson fagnar marki fyrir Víking Ólafsvík.
Guðmundur Steinn Hafsteinsson fagnar marki fyrir Víking Ólafsvík. mbl.is/Árni Sæberg

Framherjinn Guðmundur Steinn Hafsteinsson hefur skrifað undir samning við ÍBV sem leikur í Pepsi-deild karla í knattspyrnu. Guðmundur Steinn mun leika með liðinu í seinni helmingi mótsins, en honum er ætlað að fylla skarð Sigurðar Grétars Benónýssonar sem er á leiðinni út til Bandaríkjanna í nám.

Guðmundur Steinn hefur leikið með norska C-deildarliðinu Notodden í rúmt ár, en hann hefur leikið með Val, HK, Víkingi Ólafsvík og Fram á ferlinum. Guðmundur Steinn hefur leikið 129 leiki með fyrrgreindum liðum í deild og bikar og skorað í þeim leikjum 34 mörk. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert