Víkingur styrkir vörnina

Dofri Snorrason hefur fengið nýjan liðsfélaga í vörn Víkings
Dofri Snorrason hefur fengið nýjan liðsfélaga í vörn Víkings mbl.is/Eggert Jóhannesson

Króatíski miðvörðurinn Marko Perkovic hefur fengið leikheimild með Víkingi Reykjavík og mun leika með liðinu í Pepsi-deild karla út yfirstandandi leiktíð.

Greint hafði verið frá því á mbl.is að Perkovic hefði æft með Víkingi og allt útlit væri fyrir að hann myndi ganga til liðs við félagið. Nú hafa félagaskipti Perkovic verið staðfest og hann verður því löglegur þegar Víkingur mætir KR á mánudaginn kemur

Perkovic, sem er 24 ára gamall, hefur leikið með króatísku liðunum NK Marsonia og Cibalia, belgíska liðinu KM Torhout og slóvensku liðunum NK Radomlje og NK Krsko á ferli sínum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert