Vorum eins og á léttri æfingu

„Við spiluðum eins og við værum á léttri æfingu,“ sagði Ejub Purisevic, þjálfari Víkinga frá Ólafsvík, eftir að liðið tapaði 0:2 fyrir Breiðabliki í 12. umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu í kvöld.

„Menn fóru ekkert í tæklingar eða neitt og trúlega er þetta einn slakasti leikur sem við höfum átt í sumar. Fyrri hálfleikurinn var sérlega slakur hjá okkur en í þeim seinni lékum við betur og reyndum þó, en náðum ekki að skapa okkur nein hættuleg færi,“ sagði Ejub.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert