Leik Hugins og Grindavíkur seinkað

Ljósmynd frá leik Hugins og HK fyrr í sumar.
Ljósmynd frá leik Hugins og HK fyrr í sumar. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Leik Grindavíkur og Hugins í Inkasso-deild karla í knattspyrnu sem fram fer í Grindavík í kvöld hefur verið seinkað til klukkan 20.30.

Flugi Huginsmanna til Reykjavíkur seinkaði og leiknum var þar af leiðandi seinkað um rúman klukkutíma. Þetta kemur fram á twittersíðu Hugins. 

Huginn og Grindavík eru hvort á sínum enda töflunnar, en Huginn er í næstneðsta sæti deildarinnar með níu stig og Grindavík í öðru sæti með 24 stig.   

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert