Ólafsvíkingar þétta raðirnar

Denis Kramar í búningi Víkings Ólafsvíkur.
Denis Kramar í búningi Víkings Ólafsvíkur. Ljósmynd/vikingurol.is

Víkingur frá Ólafsvík sem leikur í Pepsi-deild karla í knattspyrnu hefur samið við slóvenska miðvörðinn Denis Kramar. Þetta kemur fram á heimasíðu Víkings í dag. 

Denis Kramar sem er 24 ára gamall var síðast á mála hjá FK Sarajevo í Bosníu-Hersegóvínu, en þar áður spilaði hann fyrir Perth Glory í Ástralíu og spænska B-deildarliðinu Getafe CF.

Þar áður lék Denis Kramar með Rudar Velenje, Smartno og Mura 05 í heimalandi sínu og síðar með pólska liðinu Widzew Lodz. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert