Guðmundur Böðvar í heimahagana

Guðmundur Böðvar Guðjónsson í leik með Fjölni.
Guðmundur Böðvar Guðjónsson í leik með Fjölni. mbl.is/Árni Sæberg

Knattspyrnumaðurinn Guðmundur Böðvar Guðjónsson sem leikið hefur með Fjölni undanfarin ár hefur verið lánaður í uppeldisfélags sitt, ÍA, en lánssamningurinn gildir út yfirstandandi leiktíð. 

Guðmundur hóf að leika með meistaraflokki ÍA árið 2006, en færði sig síðan um set til Fjölnis árið 2013 og fór með liðinu upp í efstu deild sama ár. Guðmundur Böðvar hefur leikið 165 leiki fyrir ÍA og Fjölni og skorað í þeim leikjum fjögur mörk. Þar af eru 73 leikir og 2 mörk í efstu deild.

Fjölnir og ÍA heyja harða baráttu um sæti í Evrópukeppni að ári, en Fjölnir er í fjórða sæti Pepsi-deildar karla með 20 stig og ÍA sæti neðar með einu stigi minna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert