Hólmbert í viðræðum við Stjörnuna

Hólmbert Aron Friðjónsson í leik KR og Fylkis í vor.
Hólmbert Aron Friðjónsson í leik KR og Fylkis í vor. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Framherjinn Hólmbert Aron Friðjónsson er í viðræðum við Stjörnuna en hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hann vilji yfirgefa KR.

Mbl.is hafði sambandi við Hólmbert sem staðfesti að hann væri í viðræðum. „Ég er að skoða mín mál. Það er ekkert ákveðið ennþá, þetta er bara í farvegi,“ sagði Hólmbert við mbl.is í morgun.

Spurður hvort fleiri valkostir væru í stöðunni sagði Hólmbert svo ekki vera. Valið stæði milli þess að fara í Stjörnuna eða vera áfram hjá KR. 

KR hefur samþykkt tilboð Stjörnunnar í  Hólmbert að sögn Almars Guðmundssonar, formanns knattspyrnudeildar Stjörnunnar. Almar gat ekki gefið meira upp að svo stöddu en leikmannaglugginn lokast næsta mánudag. 

Hólm­bert kom til KR í júlí síðasta sum­ar en hann var áður á mála hjá Celtic í Skotlandi, og var lánaður þaðan til Brönd­by í Dan­mörku síðasta vet­ur. Hólm­bert, sem er 23 ára, lék með HK til 18 ára ald­urs og síðan með Fram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert