Huginn náði í mikilvægan sigur

Leikmenn Hugins mæta grönnum sínum í Leikni í fallslag í …
Leikmenn Hugins mæta grönnum sínum í Leikni í fallslag í dag. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Tveimur leikjum var að ljúka í 1. deild karla í knattspyrnu en Huginn vann Leikni F. í mikilvægum leik í fallbaráttunni á meðan Þór lagði Fjarðabyggð að velli.

Þór - Fjarðabyggð, 3:1
Leiknir F. - Huginn , 2:4

Þar með er Huginn með 19 stig í fallbaráttunni, HK 18, Fjarðabyggð 17 en Leiknir F. 12 stig. Þórsarar fóru hinsvegar upp í fjórða sætið með 29  stig.

Óskar Jónsson, Gunnar Örvar Stefánsson og Sigurður Marinó Kristjánsson komu Þór í 3:0 í fyrri hálfleik en Zeljko Dimitrov minnkaði muninn fyrir Þór undir lokin.

Leiknir F. komst í 2:1 gegn Hugin í botnslag grannanna í Fjarðabyggðarhöllinni. Stefan Spasic skoraði fyrst fyrir Hugin en Kristófer Páll Viðarsson og Jesus Suárez svöruðu fyrir Leikni. Rúnar Freyr Þórhallsson kom Hugin í 3:2 með tveimur mörkum rétt fyrir hlé. Birkir Pálsson skoraði, 4:2, í upphafi síðari hálfleiks og þar við sat.

15:56 Leikjunum er lokið.

15:39 MARK! Zeljko Dimitrov að minnka muninn fyrir Fjarðabyggð gegn Þór.

15:07 MARK! Birkir Pálsson að skora fjórða mark Hugins.

15:05 Síðari hálfleikur er hafinn

14:45 MARK! Rúnar Freyr Þórhallsson skorar tvö mörk með stuttu millibili og kemur Hugin í 3:2 gegn Leikni F.

14:44 Hálfleikur á Akureyri!

14:35 MARK. 2:1. Jesus Suárez kemur Leikni yfir gegn Huginn. 

14:31 MÖRK! Sigurður Marinó Kristjánsson og Gunnar Örvar Stefánsson koma Þór í 3:0 gegn Fjarðabyggð. 

14:24 MARK! Stefan Spasic kemur Hugin yfir á 16. mínútu en Kristófer Páll Viðarsson jafnar metin úr víti á 24. mínútu. Staðan 1:1 í leik Leiknis og Hugins.

14:15 MARK! Óskar Jónsson kemur Þór yfir gegn Fjarðabyggð. Staðan 1:0.

14:01 Leikirnir eru farnir af stað.

13.00 Byrjunarliðin eru klár:

Þór - Fjarðabyggð

Þór Fjarðabyggð
 BYRJUNARLIÐ
Aron Birkir Stefánsson  (M)   Uros Poljanec (M)  
Gauti Gautason     Emil Stefánsson    
Ármann Pétur Ævarsson  (F)   Ingiberg Ólafur Jónsson    
Jóhann Helgi Hannesson     Stefán Þór Eysteinsson  (F)  
11  Kristinn Þór Björnsson     Loic Cédric Mbang Ondo    
13  Ingi Freyr Hilmarsson     Aron Gauti Magnússon    
15  Guðni Sigþórsson     10  Elvar Þór Ægisson    
19  Sigurður Marinó Kristjánsson     13  Víkingur Pálmason    
20  Óskar Jónsson     17  Hákon Þór Sófusson    
23  Ólafur Hrafn Kjartansson     19  Dimitrov Zelkjo   
27  Gunnar Örvar Stefánsson     20  Brynjar Már Björnsson  

Leiknir - Huginn

Leiknir F. Huginn
 BYRJUNARLIÐ
Adrian Murcia Rodriguez (M)   12  Atli Gunnar Guðmundsson  (M)  
Guðmundur Arnar Hjálmarsson     Blazo Lalevic   
Antonio Calzado Arevalo    Rúnar Freyr Þórhallsson    
Jesus Guerrero Suarez (F)   Mirnes Selamovic   
Kristófer Páll Viðarsson     Johnatan P. Alessandro Lama   
Ignacio Poveda Gaona    11  Pétur Óskarsson    
10  Jose Omar Ruiz Rocamora    14  Stefán Ómar Magnússon    
14  Hilmar Freyr Bjartþórsson     16  Birkir Pálsson  (F)  
19  Andres Salas Trenas    18  Marko Nikolic   
20  Kifah Moussa Mourad     19  Gunnar Wigelund   
21  Anto Pejic    20  Stefan Spasic 
Sigurður Marinó Kristjánsson og félagar í Þór taka á móti …
Sigurður Marinó Kristjánsson og félagar í Þór taka á móti Fjarðabyggð í dag. mbl.is/Golli / Kjartan Þorbjörnsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert