Erum ekki hættir

„Við erum ekki hættir,“ sagði Milos Milojevic, þjálfari Reykjavíkur-Víkings eftir 2:0 tap fyrir ÍA í 17. umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu í kvöld.

Með tapinu eru möguleikar Víkinga á Evrópusæti orðnir litlir. „Já þeir eru ekki miklir, en þó enn til staðar. Það eru 15 stig eftir í pottinum og við erum ekki hættir,“ sagði þjálfarinn.

Hann var ekki ánægður með sína menn í gær og sagði að um leið og liðið væri komið 500 metra frá Víkinni þá gengi ekkert hjá því. „Við vorum slakir og sigur ÍA mjög sanngjarn,“ sagði Milos.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert