Tveir Fylkismenn í leikbann

Tveir lærisveinar Hermans Hreiðarssonar voru úrskurðaðir í leikbann í dag.
Tveir lærisveinar Hermans Hreiðarssonar voru úrskurðaðir í leikbann í dag. mbl.is/Árni Sæberg

Átta leikmenn úr Pepsi-deild karla í knattspyrnu voru úrskurðaðir í leikbann á fundi aga- og úrskurðarnefndar KSÍ í dag.

Leikmennirnir sem um ræðir eru:

Ragnar Bragi Sveinsson, Fylki
Tonci Radovnikovic, Fylki
Hallur Flosason, ÍA
Skúli Jón Friðgeirsson, KR
Bjarni Ólafur Eiríksson, Val
Igor Taskovic, Víkingi R.
Hreinn Ingi Örnólfsson, Þrótti R.
Tonny Mawejje, Þrótti R.

Leikmennirnir taka út leikbönnin í 18. umferð Pepsi-deildarinnar sem leikin verður um aðra helgi, en hlé hefur verið gert á deildinni vegna leikja A-landsliðsins og U21 árs landsliðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert