Undirbúningurinn hafinn í Frankfurt

Landsliðið á æfingu í Frankfurt.
Landsliðið á æfingu í Frankfurt. Ljósmynd/KSÍ

Karlalandsliðið í knattspyrnu er saman komið í Frankfurt í Þýskalandi og mun búa sig þar undir leikinn gegn Úkraínumönnum sem fram fer í Kíev næsta mánudag.

Landsliðið æfir í Frankfurt næstu dagana áður en það heldur til Kíev á laugardaginn en leikurinn við Úkraínumenn er fyrsti leikurinn í undankeppni heimsmeistaramótsins.

Landsliðið æfði við góðar aðstæður í Frankfurt í dag eins og sjá má á meðfylgjandi myndum sem birtar eru á Facebook-síðu KSÍ.

Heimir Hallgrímsson ræðir við leikmenn landsliðsins.
Heimir Hallgrímsson ræðir við leikmenn landsliðsins. Ljósmynd/KSÍ
Strákarnir í teygjuæfingum.
Strákarnir í teygjuæfingum. Ljósmynd/KSÍ
Landsliðsmennirnir í sólinni í Frankfurt.
Landsliðsmennirnir í sólinni í Frankfurt. Ljósmynd/KSÍ
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert