Alfreð og Jeffs klára tímabilið

Alfreð Elías Jóhannsson mun stýra ÍBV ásamt Ian Jeffs út …
Alfreð Elías Jóhannsson mun stýra ÍBV ásamt Ian Jeffs út tímabilið hið minnsta. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Knattspyrnudeild ÍBV hefur náð samkomulagi við Alfreð Elías Jóhannsson og Ian Jeffs þess efnis að þeir stýri karlaliði ÍBV út tímabilið. Alfreð Elías var aðstoðarmaður Bjarna Jóhannessonar, sem lét af störfum nýlega.

Alfreð Elías hefur þjálfað 2. flokk félagsins og mun halda því áfram samhliða þessu verkefni. Jeffs er leikmaður liðsins sem og aðalþjálfari meistaraflokks kvenna. Jeffs mun einnig halda áfram sem þjálfari kvennaliðsins samhliða því að stýra karlaliðinu.

ÍBV er í tíunda sæti deildarinnar með 18 stig eftir 17 umferðir, fjórum stigum frá fallsæti þegar fimm umferðir eru eftir. Næsti leikur liðsins er gegn KR á Alvogen-vellinum laugardaginn 10. september.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert