Miðasala á leikinn við Finna hefst í dag

Íslenska landsliðið fékk góðan stuðning á EM í Frakklandi í …
Íslenska landsliðið fékk góðan stuðning á EM í Frakklandi í sumar þar sem það komst í 8-liða úrslit en féll þar úr leik gegn Frökkum. AFP

Miðasala á fyrsta heimaleik íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu í undankeppni HM 2018 hefst kl. 12 í dag.

Um er að ræða leik Íslands og Finnlands á Laugardalsvelli fimmtudagskvöldið 6. október. Þetta verður annar leikur Íslands í undankeppninni en sá fyrsti er gegn Úkraínu ytra á mánudagskvöld.

Miðasalan fer fram á midi.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert