Miðasala á Tyrkjaleikinn á föstudaginn

Íslenskir stuðningsmenn á leik liðsins gegn Frakklandi í átta liða …
Íslenskir stuðningsmenn á leik liðsins gegn Frakklandi í átta liða úrslitum á EM 2016. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Miðasala á leik Íslands og Tyrklands í undankeppni HM hefst föstudaginn 2. september kl. 12.00 á hádegi. Leikurinn fer fram sunnudaginn 9. október á Laugardalsvelli kl. 18.45 og fer miðasalan fram í gegnum miðasölukerfi hjá www.midi.is.

Eins og undanfarin ár verður boðið upp á barnaverð fyrir 16 ára og yngri sem er 50% af fullu miðaverði. Hægt er að velja barnaverð í kaupferlinu.

Verð:

  • Rautt svæði - 7.000 krónur
  • Blátt svæði - 5.000 krónur
  • Grænt svæði - 3.000 krónur
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert