Jugovic áfram með Fjölni í tvö ár

Igor Jugovic í leik með Fjölni.
Igor Jugovic í leik með Fjölni. Ófeigur Lýðsson

Knattspyrnudeild Fjölnis hefur framlengt samning sinn við króatíska miðjumanninn Igor Jugovic um að spila áfram með liðinu næstu tvö árin, eða út keppnistímabilið 2018.

Jugovic hefur verið í stóru hlutverki á miðjunni hjá Fjölni í ár en hann hefur spilað alla átján leiki liðsins í Pepsi-deild karla og skorað eitt mark.

Hann er 27 ára gamall og kom til Fjölnis fyrir þetta tímabil frá Celje í Slóveníu. Hann hafði áður spilað með Sheriff í Moldóvu og Slaven Belupo, Istra og NK Zagreb í heimalandi sínu en einnig um skeið með Irtysh í Kasakstan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert