Trninic áfram hjá KA-mönnum

Aleksandar Trninic í leik með KA í sumar.
Aleksandar Trninic í leik með KA í sumar. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

KA-menn sem tryggðu sér sigur í Inkasso-deildinni í knattspyrnu á dögunum hafa gert nýjan tveggja ára samning við serbneska miðjumanninn Aleksandar Trninic.

Trninic, sem gekk í raðir Akureyrarliðsins fyrir tímabilið, lék 19 af 22 leikjum KA-manna í deildinni í sumar og skoraði í þeim fjögur mörk.

Serbinn lék feykilega vel með KA í sumar. Hann byrjaði rólega en óx ásmegin þegar leið á sumarið og var einn af betri mönnum liðsins þegar líða tók á sumarið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert