Aron vongóður en Kolbeinn úr leik

Aron Einar Gunnarsson vonast til að geta spilað en Kolbeinn …
Aron Einar Gunnarsson vonast til að geta spilað en Kolbeinn Sigþórsson missir nær örugglega af næstu landsleikjum. mbl.is/Skapti

Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson er vongóður um að ná landsleikjunum á móti Finnum og Tyrkjum í undankeppni HM á Laugardalsvellinum 6. og 9. október en Kolbeinn Sigþórsson verður að öllu óbreyttu ekki með í þeim leikjum.

Aron Einar lék ekki með Cardiff um nýliðna helgi vegna meiðsla og verður heldur ekki með í kvöld þegar lið hans tekur á móti Derby.

„Ég er búinn að vera meiddur frá því í leiknum á móti Leeds. Það er tognun í vöðvafestingunni í kálfanum en ég byrja að hlaupa í vikunni og er jákvæður fyrir því að ná landsleikjunum,“ sagði Aron Einar við Morgunblaðið í gær.

Kolbeinn fór í aðgerð á hné í byrjun september og er ekki kominn af stað eftir hana, en reiknað var með þriggja til fjögurra vikna fjarveru.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert