Haukar 1. deildarmeistarar

Haukakonur eru 1. deildarmeistar í knattspyrnu.
Haukakonur eru 1. deildarmeistar í knattspyrnu. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Haukar gerðu sér lítið fyrir og skelltu Grindavík 5:1 í úrslitaleik um deildarmeistaratitilinn í 1. deild kvenna í knattspyrnu. Bæði lið voru búin að tryggja sér sæti í efstu deild kvenna að ári en Haukar tryggðu sér gullið með miklum yfirburðum.

Grindavík komst yfir með marki Drafnar Einarsdóttur á 3. mínútu en Þórís Eva Ágústsdóttir jafnaði metin á 26. mínútu og þannig var staðan í hálfleik.

Haukakonur bættu fjórum mörkum við í síðari hálfleik og skiptu þær Dagrún Birta Karlsdóttir, Heiða Rakel Guðmundsdóttir, Hildigunnur Ólafsdóttir og Alexandra Jóhannsdóttir mörkunum jafnt á milli sín.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert