Ajax í góðri stöðu gegn Breiðabliki

Breiðablik laut í lægra haldi, 3:0, fyrir Ajax í fyrri leik liðanna í fyrstu umferð í ungmennadeild UEFA á Kópavogsvellinum í dag. Það voru Kaj Sierhuis, Matthijs de Ligt og Dani De Wit sem skoruðu mörk Ajax í leiknum. 

Justin Kluivert, sonur Patrick Kuivert sem lék með Ajax á árunum 1994 til 1997, lagði upp eitt marka Ajax í leiknum. Aron Winter, fyrrum leikmaður Ajax og hollenska landsliðsins, er þjálfari ungmennaliðs Ajax.

Seinni leikur liðanna fer fram í Hollandi eftir slétta viku og ljóst að það verður við rammann reip að draga hjá leikmönnum Breiðabliks í þeim leik. 

Hér að neðan má sjá mörk Ajax í leiknum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert