Heimir samdi við FH til 2018

Heimir Guðjónsson hefur gert FH að Íslandsmeistara fimm sinnum.
Heimir Guðjónsson hefur gert FH að Íslandsmeistara fimm sinnum. mbl.is/Golli

Heimir Guðjónsson hefur skrifað undir nýjan samning við FH til næstu tveggja ára um að vera áfram þjálfari meistaraflokks karla í knattspyrnu hjá félaginu.

Heimir hefur verið einstaklega sigursæll sem þjálfari FH en hann hefur gert FH að Íslandsmeistara fimm sinnum, árin 2008, 2009, 2012, 2015 og nú 2016. Áður var Heimir aðstoðarþjálfari og leikmaður FH og tók þátt í að vinna Íslandsmeistaratitlana árin 2004, 2005 og 2006.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert