Lillý efnilegust í deildinni

Lillý Rut Hlynsdóttir með viðurkenninguna á Hásteinsvelli eftir leikinn í …
Lillý Rut Hlynsdóttir með viðurkenninguna á Hásteinsvelli eftir leikinn í dag. Jóhannes Ólafsson, stjórnarmaður KSÍ, afhenti henni gripina glæsilegu. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Lillý Rut Hlynsdóttir, varnarmaðurinn öflugi í liði Þórs/KA, var rétt í þessu útnefnd efnilegasti leikmaðurinn í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu á keppnistímabilinu 2016.

Hún fékk viðurkenningu fyrir það strax að loknum leik ÍBV og Þórs/KA í Vestmannaeyjum í dag.

Lillý er 19 ára gömul og hefur verið í stóru hlutverki í Akureyrarliðinu undanfarin ár. Hún spilaði alla 18 leiki þess í deildinni á þessu tímabili og hefur þrátt fyrir ungan aldur þegar leikið 79 leiki með Þór/KA í úrvalsdeildinni. Þá hefur hún verið fastamaður í yngri landsliðunum og á samtals 34 leiki að baki fyrir Íslands hönd í U19 og U17 ára liðunum.

Lið Þórs/KA samgladdist Lillý Rut Hlynsdóttur og stillti sér upp …
Lið Þórs/KA samgladdist Lillý Rut Hlynsdóttur og stillti sér upp með henni eftir verðlaunaafhendinguna á Hásteinsvelli. Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Lillý Rut Hlynsdóttir í leiknum gegn ÍBV í dag.
Lillý Rut Hlynsdóttir í leiknum gegn ÍBV í dag. Ljósmynd/Sigfús Gunnar
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert