Baráttan um gullskóinn

Kristinn Freyr Sigurðsson fagnar einu af 13 mörkum sínum í …
Kristinn Freyr Sigurðsson fagnar einu af 13 mörkum sínum í deildinni á þessari leiktíð. mbl.is/Golli

Lokaumferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu verður leikin í dag. Það er lítið undir í leik Vals og ÍA, en bæði lið sigla lygnan sjó um miðja deild. Garðar Bergmann Gunnlaugsson, framherji ÍA, og Kristinn Freyr Sigurðsson, sóknartengiliður Vals, munu hins vegar að öllum líkindum mæta vel stemmdir til leiks þar sem þeir berjast um gullskóinn. 

Garðar Bergmann er markahæstur leikmaður deildarinnar fyrir lokaumferðina með 14 mörk í 21 leik á meðan Kristinn Freyr hefur skorað 13 mörk í 20 leikjum í deildinni í sumar. Tvö marka Garðars Bergmanns hafa komið úr vítaspyrnum og Kristinn Freyr hefur skorað úr þremur vítaspyrnum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert