Jóhann Kristinn Gunnarsson, sem þjálfað hefur kvennalið Þórs/KA í knattspyrnu undanfarin fimm ár, er hættur störfum hjá félaginu. Þetta kemur fram á vefsíðunni kaffið.is.
Jóhann Kristinn gerði Þór/KA að Íslandsmeisturum á sínu fyrsta ári sem þjálfari félagsins, en það er fyrsti og eini Íslandsmeistaratitill félagsins. Ári síðar stýrði hann síðan Þór/KA í bikarúrslitum þar sem liðið beið lægri hlut gegn Breiðabliki.
Þór/KA hafnaði í fjórða sæti Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu á nýafstaðinni leiktíð, en liðið varð einnig í fjórða sæti leiktíðina þar á undan.