Jeremy Serwy, leikmaður Íslandsmeistaraliðs FH, er á förum frá félaginu en þetta staðfesti Heimir Guðjónsson, þjálfari liðsins, í samtali við knattspyrnuvefinn 433.is.
Serwy, sem er belgískur vængmaður, kom til FH fyrir síðasta tímabil en hann hefur engan veginn staðist þær væntingar sem gerðar voru til hans.
Hann lék samtals 12 leiki í Pepsi-deildinni á þessu tímabili en samtals á hann 40 leiki og 6 mörk að baki fyrir félagið í öllum keppnum.