Bjarni Ólafur samdi við Val (myndskeið)

Bjarni Ólafur ásamt Sigurði Pálssyni formanni meistaraflokks ráðs að lokinni …
Bjarni Ólafur ásamt Sigurði Pálssyni formanni meistaraflokks ráðs að lokinni undirskrift. Ljósmynd/Valur

Bjarni Ólafur Eiríksson hefur framlengt samning sinn við bikarmeistara Vals í knattspyrnu.

Bjarni Ólafur, sem er varafyrirliði Valsmanna hefur leikið alls 259 leiki fyrir Hlíðarendaliðið í deild og bikar og hefur verið í mikilvægu hlutverki með liðinu undanfarin ár.

„Ég er gríðarlega ánægður með að hafa framlengt samninginn minn. Mér finnst við vera að stefna í rétta átt og höfum verið að gera það síðan Óli Jó og Bjössi tóku við.“

„Það eru tíu ár síðan ég og Valur unnum titilinn og það væri stórkostlegt að gera það núna,“ segir Bjarni en allt viðtalið við hann má sjá á meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert