Óli Stefán áfram með Grindavík

Óli Stefán Flóventsson og Milan Stefán Jankovic gengu frá samningi …
Óli Stefán Flóventsson og Milan Stefán Jankovic gengu frá samningi við Grindavík í kvöld. Ljósmynd/Grindavík

Grindavík verður með sömu menn í brúnni og komu þeim upp úr Inkasso-deildinni í knattspyrnu í haust, þegar þeir mæta til leiks í Pepsi-deildinni næsta sumar.

Grindvíkingar sendu frá sér fréttatilkynningu í kvöld þar sem fram kemur að Óli Stefán Flóventsson og Milan Stefán Jankovic hafi skrifað undir samning um áframhaldandi þjálfun meistaraflokks karla.

Óli Stefán er aðalþjálfari og Janko honum til aðstoðar. Óli Stefán tók við af Tommy Nielsen síðasta vetur eftir að hafa verið honum til aðstoðar, en hann var áður þjálfari Sindra á Höfn í Hornafirði. Janko var áður þjálfari hjá Grindavík um árabil.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert