Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur líkt og áður úthlutað hluta af þeim tekjum sem sambandið hafði af Meistaradeild Evrópu til félaga í öllum aðildarlöndum sambandsins til eflingar knattspyrnu barna og unglinga.
Uppgjör vegna Meistaradeildarinnar sem lauk vorið 2016 hefur nú farið fram og fá íslensk félög um 56 milljónir króna í sinn hlut til barna- og unglingastarfs. Samkvæmt ákvörðun UEFA skulu öll framlög vegna Meistaradeildar UEFA til barna- og unglingastarfs renna til félaga í efstu deild. Framlag UEFA skiptist því á milli félaga í Pepsi-deild karla.
Stjórn KSÍ hefur samþykkt að leggja til um 51 milljón króna til viðbótar til barna- og unglingastarfs sem skiptist á milli aðildarfélaga í öðrum deildum og utan deilda. Samþykkt stjórnar KSÍ byggist á samráði við aðildarfélögin og almennri sátt um skiptingu fjármunanna. Greiðslan til félaganna skal renna óskipt til eflingar knattspyrnu barna og unglinga frá yngstu iðkendum til og með 2. aldursflokki karla og kvenna. Samtals er því framlag til barna- og unglingastarfs fyrir árið 2016 áætlað um 107 milljónir króna.
Eftirfarandi tafla sýnir greiðslur í milljónum króna frá UEFA vegna Meistaradeildarinnar 2015/2016 og frá KSÍ til barna- og unglingastarfs aðildarfélaga KSÍ. Styrkurinn kemur til greiðslu 1. nóvember 2016.
Pepsi-deild karla |
Upphæð |
Breiðablik |
4.688.947 |
FH |
4.688.947 |
Fylkir |
4.688.947 |
Fjölnir |
4.688.947 |
ÍA |
4.688.947 |
ÍBV |
4.688.947 |
KR |
4.688.947 |
Stjarnan |
4.688.947 |
Valur |
4.688.947 |
Víkingur Ó |
4.688.947 |
Víkingur R |
4.688.947 |
Þróttur R |
4.688.947 |
1. deild karla | |
Fram |
2.100.000 |
Grindavík |
2.100.000 |
Haukar |
2.100.000 |
HK |
2.100.000 |
KA |
2.100.000 |
Keflavík |
2.100.000 |
Leiknir F |
2.100.000 |
Leiknir R |
2.100.000 |
Selfoss |
2.100.000 |
Þór |
2.100.000 |
2. deild karla | |
Afturelding |
1.400.000 |
Vestri |
1.400.000 |
Grótta |
1.400.000 |
Höttur |
1.400.000 |
ÍR |
1.400.000 |
KF |
1.400.000 |
Magni |
1.400.000 |
Sindri |
1.400.000 |
Völsungur |
1.400.000 |
Ægir |
1.400.000 |
Önnur félög í deildarkeppni og sameiginleg lið í efri deildum - þátttaka í KSÍ mótum (bæði kyn) |
|
Dalvík |
1.000.000 |
Einherji |
1.000.000 |
Reynir S |
1.000.000 |
Tindastóll |
1.000.000 |
Víðir |
1.000.000 |
Þróttur V |
1.000.000 |
Álftanes |
1.000.000 |
Hamar |
1.000.000 |
Skallagrímur |
1.000.000 |
Snæfell |
1.000.000 |
Kormákur |
1.000.000 |
Hvöt |
1.000.000 |
Austri |
1.000.000 |
Valur Rfj |
1.000.000 |
Þróttur N |
1.000.000 |
Samtals: |
106.267.364 |